“Þegar hljóðbylgjurnar flæða í
gegnum líkamann hreyfa
þær við hverri frumu og
jafna orkuflæði okkar”

Hver er Vala Sólrún?

Ég bý að menntun í tónlist sem víóluleikari og tónskáld og útskrifaðist með BA og meistaragráður frá LHÍ 2013. Ég lærði Hljóðfræði og hljóðupptökur hjá SAE í London og síðar tónheilun hjá Acutonics, líka í Englandi. Þegar ég fann tónheilun fann ég lífskraft sem leysti úr læðingi nýjan heim fyrir mér og veröld mín stækkaði. Ég fann dulinn hluta af sjálfri mér og nýjan tilgang í lífinu en áhrifin breyttu mér til hins betra og innsæið sagði mér að gefa áfram töfrana sem ég hafði fundið en töfrar tónlistarinnar eru ótvíræðir og sama gildir um orkuvinnuna sem hefur þróast samhliða tónsköpun minni.

Ég hef bætt ýmsu við mig á leiðinni t.d. hef ég lært heilun, flotmeðferð Flothettu, sauna-gusu,
andlits og svæðanudd og er jógakennari. Nú Ambassador fyrir MEINL Sonic Energy sem er sannarlega rós í hnappagatið.